Uppbygging atvinnukjarna í landi Reita á Blikastöðum hafin
8/5/2022
8/5/2022
Á svæðinu verða um 90 þús. fermetrar atvinnuhúsnæðis í 30 byggingum. Skipulagið mun taka mið af legu Borgarlínu í gegnum svæðið sem verður umhverfisvottað á grunni BREEAM.
Reitir og Mosfellsbær undirrituðu í dag samkomulag um uppbygginu á nýjum atvinnukjarna í landi Reita á Blikastöðum, á svæði við Vesturlandsveg milli Úlfarsfells og Korpu. Atvinnusvæði Reita er sunnan við fyrirhugaða nýja íbúðabyggð á svæðinu.
Samkomulagið rammar inn samstarf Mosfellsbæjar og Reita um afgreiðslu deiliskipulags og gatnagerð í samræmi við skipulagstillögur sem Reitir hafa unnið að í samstarfi við sveitarfélagið á umliðnum árum.
Atvinnukjarninn verður skipulagður fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi eins og skrifstofur, verslun og þjónustustarfsemi. Skipulag atvinnukjarnans gerir ráð fyrir 90 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði í um 30 byggingum. Þá tekur skipulagið mið af fyrirhugaðri Borgarlínu í gegnum svæðið og hverfið verður umhverfisvottað á grunni krafna BREEAM Communities, sem felur í sér að hugað verður mjög vel að umhverfisþáttum og sjálfbærni hverfisins.
Samkomulagið gerir ráð fyrir að gatnaframkvæmdir geti hafist vorið 2023 og að byggingarframkvæmdir fyrsta áfanga hefjist strax í kjölfarið.
Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita:
„Þessi samningur er mikilvægur áfangi fyrir okkur hjá Reitum því nú fer verkefnið af skipulagsstigi yfir á framkvæmdastig. Samhliða afgreiðslu á nýju deiliskipulagi getur gatnahönnun hafist ásamt hönnun bygginga í fyrsta áfanga.“
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita:
„Á næstu árum munu Reitir standa að uppbyggingu á nýjum atvinnukjarna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Landið er ákaflega vel staðsett og nýtur mikilla umhverfisgæða. Svæðið hefur verið skipulagt með umhverfi og sjálfbærni að leiðarljósi, sem mun án efa laða til sín framsýn fyrirtæki sem vilja skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir starfsfólk og viðskiptavini í grænu umhverfi“
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar:
„Við hjá Mosfellsbæ erum mjög ánægð með þróun þessa verkefnis og teljum að hugmyndir Reita falli vel að áherslum okkar og séu til þess fallnar að mæta framtíðar kröfum atvinnulífsins um lifandi og opna atvinnukjarna. Áherslur Reita á sviði umhverfismála falla vel að áherslum Mosfellsbæjar sem hefur verið leiðandi sveitarfélaga á sviði umhverfismála enda erum við í nánum tengslum við náttúruna og landið og styðjum öll góð áform í þeim efnum. Hin nýi atvinnukjarni verður síðan vel tengdur við stórefldar almenningssamgöngur sem og nýja íbúabyggð í landi Blikastaða. Þessi uppbygging Reita er því einkar ánægjuleg og mun án alls efa stuðla að fleiri og fjölbreyttari atvinnutækifærum í Mosfellsbæ.“
Hönnun og vefvinnsla: ONNO ehf