Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna B. Hansen sviðsstjóra Umhverfissviðs Mosfellsbæjar, Birgir Þór Birgisson framkvæmdastjóri Þróunar hjá Reitum, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Guðni Aðalsteinsson forstjóri Reita, Ingveldur Ásta Björnsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptavina hjá Reitum og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir starfandi deildarstjóri Eignasjóðs Mosfellsbæjar

Gatnagerð hafin í Korputúni

2/9/2024

Gatnagerð er hafin í Korputúni, nýju atvinnuhverfi sem rísa mun á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið er alls um 15 hektarar eða hátt á stærð við verslunarsvæði Skeifunnar í Reykjavík. Hverfið er í næsta nágrenni við Blikastaðaland í Mosfellsbæ þar sem umfangsmikil uppbygging nýs íbúahverfis er fyrirhuguð.

Fyrsta vistvottaða atvinnuhverfið á Íslandi

Korputún er er hluti af mikilli uppbyggingu sem framundan er í norðurhluta höfuðborgarsvæðisins. Hverfið er einstakt á landsvísu því það er fyrsta atvinnuhverfið sem er skipulagt samkvæmt kröfum BREEAM Communities vistvottunarstaðalsins. Þetta þýðir að Korputún er skipulagt út frá þörfum fólks og náttúrunnar en ekki síður út frá hefðbundnum þáttum s.s. aðgengi, vöruflutningum og sýnileika.

Húsnæði fyrir fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir

Í Korputúni geta fyrirtæki keypt lóðir eða fengið klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Svæðið er einstaklega aðgengilegt við Vesturlandsveg og staðsetning þess innan höfuðborgarsvæðisins nýtir vegrými í gagnstæða átt við umferðarþunga á annatímum. Samgönguás Borgarlínu mun liggja í gegnum skipulagssvæðið.

Nýja atvinnuhverfið í Korputúni er gífurlega vel staðsett og býður mikil tækifæri. Höfuðborgarsvæðið er í mikilli þróun, ekki síst í norður- og austurhluta þar sem m.a. mun rísa byggð í Blikastaðalandinu og svo Keldnaholti þegar fram líða stundir. Korputún mun leika mikilvægt hlutverk í þessari uppbyggingu með blómlegu atvinnulífi í nýju og vönduðu hverfi.  Náttúrufegurðin og náttúrugæðin á svæðinu styðja vel við hugmyndafræðina að baki hönnun svæðisi

ns, þ.e. hugmyndafræði náttúruverndar og vellíðan starfsfólks.

Neðst í landinu, nálægt Korpu, er fallegt svæði með miklu dýralífi sem mikilvægt er að vernda. Við skipulag hverfisins var því lögð mikil áhersla á að lágmarka rask á vatnsmagni sem rennur í Korpu og unnin var vönduð viststefna fyrir hverfið. Niðurstaðan er skipulagsskilmálar sem gera kröfu um mikinn gróður og vistfræðilega viðeigandi gróðurval.  Með þessu viljum við bæði skapa heilsusamlegt umhverfi og vernda náttúruna á svæðinu. Samstarf Reita og Mosfellsbæjar hefur verið afar gott a skipulagstímanum og við hlökkum til samstarfsins á framkvæmdastiginu sem er nú er að hefjast með gatnagerðinni.” – Guðni Aðalsteinsson, forstjóir Reita.

Reitir hafa samið við tvö stór fyrirtæki um húsnæði á svæðinu. Annarsvegar er um að ræða sölu lóða með um 17 þúsund fermetra byggingamagni. Hinsvegar er um að ræða matvöruverslun sem verður kjölfesta í verslunarkjarna svæðisins auk þess að koma til með að þjóna íbúum í nýju aðliggjandi hverfi sem er í þróun í Blikastaðalandi.

Ég fagna því að við séum að hefja uppbyggingu á þessu nýja atvinnusvæði í Mosfellsbæ. Það styrkir samfélagið hér að fá ný fyrirtæki á svæðið bæði hvað varðar þjónustu við íbúa en ekki síst að fjölga atvinnutækifærum. Við eigum í mjög góðu samstarfi við Reiti um þróun atvinnusvæðisins og höfum væntingar um að fá hingað öflug og fjölbreytt fyrirtæki.” segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna B. Hansen sviðsstjóra Umhverfissviðs Mosfellsbæjar, Birgir Þór Birgisson framkvæmdastjóri Þróunar hjá Reitum, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Guðni Aðalsteinsson forstjóri Reita, Ingveldur Ásta Björnsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptavina hjá Reitum og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir starfandi deildarstjóri Eignasjóðs Mosfellsbæjar

Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna B. Hansen sviðsstjóra Umhverfissviðs Mosfellsbæjar, Birgir Þór Birgisson framkvæmdastjóri Þróunar hjá Reitum, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Guðni Aðalsteinsson forstjóri Reita, Ingveldur Ásta Björnsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptavina hjá Reitum og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir starfandi deildarstjóri Eignasjóðs Mosfellsbæjar

Til baka

Hönnun og vefvinnsla: ONNO ehf