Ný skrifstofa, verslun eða sérhæft atvinnuhúsnæði sérhannað að þínum þörfum eða verslunarhúsnæði tilbúið til afhendingar.
Greiðfært er að Korputúni um Vesturlandsveg og Borgarlína er fyrirhuguð í gegnum hverfið. 30.000 bílar fara um Vesturlandsveg daglega.
BREEAM Communities vottun tryggir að hugað sé að sjálfbærum áherslum með vel skilgreindum viðmiðum um samfélagsleg, umhverfisleg og efnahagsleg gæði.
BREEAM vottun tryggir að hugað sé að sjálfbærum áherslum í skipulagsvinnu strax í upphafi með vel skilgreindum viðmiðum um samfélagsleg, umhverfisleg og efnahagsleg gæði. Í skipulagsskilmálum er t.d. rík krafa um gróðurþekju, stór hluti bílastæða verður með gegndræpu yfirborði og skilgreint hefur verið plöntuval sem er vistfræðilega viðeigandi fyrir svæðið styður við líffræðilegan fjölbreytileika. Sjálfbærar ofanvatnslausnir og safntjarnir neðst í hverfinu vernda Korpu fyrir breytingum í flæði vatns og hreinsa yfirborðsvatn áður en það nær til árinnar.
Reitir hafa áhuga á því að BREEAM votta einnig byggingar sem reistar verða á svæðinu og verður því vistvottað atvinnuhúsnæði til leigu á svæðinu.
Sjá meira
Vottunin felst í því að öll grunngögn sem unnin voru fyrir deiliskipulagið hafa verið samþykkt og hefur Korputún því fengið „Interim Assessment“ eða bráðabirgðavottun
Sjá meira
Deiliskipulag fyrir Korputún, 90 þús. fm. atvinnukjarna á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar, hefur nú tekið gildi.
Sjá meira
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar boðar til opins íbúafundar.
Sjá meira
Deiliskipulagssvæðið er um 16,9 ha og er við Vesturlandsveg.
Sjá meira
Reitir og Mosfellsbær undirrituðu í dag samkomulag um uppbygginu
Sjá meira
Stór hluti yfirborðs verður gegndræpur og vatni af hörðu yfirborði verður veitt í gróðurbeð sem sía og hreinsa vatnið náttúrulega og áður en það nær til árinnar.
Krafa er um mikla gróðurþekju og að 80% þakflata verði græn. Skilgreint hefur verið vistfræðilega viðeigandi gróðurval sem styður við líffræðilegan fjölbreytileika.
Samgöngumiðað skipulag með Borgarlínu ásamt göngu- og hjólaleiðum í sérrými í miðju hverfissins. Biðstöð verður við verslunarkjarnann sem nýtur góðs aðgengis með bíl.
Reitir fasteignafélag er meðal stærstu fasteignafélaga landsins og státar af yfir 35 ára reynslu og farsælum viðskiptasamböndum við mörg stærstu fyrirtæki landsins og margar ríkisstofnanir.
Reitir bjóða atvinnuhúsnæði til leigu úr eigin fasteignasafni. Starfsemi félagsins felst þannig í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis.
Fasteignasafn Reita eru að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á Höfuðborgarsvæðinu. Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania ásamt skrifstofu Landspítalans við Skaftahlíð 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg og Hilton Reykjavík Nordica og Hotel Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Berjaya, ríki og sveitarfélög.
Reitir er skráð á Nasdaq hlutabréfamarkaðinn og stærstu eigendur félagsins eru íslenskir lífeyrissjóðir.
Hönnun og vefvinnsla: ONNO ehf